EIGINLEIKAR
Með einföldum snertiskjá getur þú búið til þína eigin kaffiuppskrift og vistað á vélina svo þú getir notið bollans aftur og aftur. Þú getur sérstillt þinn uppáhalds bolla allt frá ristretto til café latte með því magni af kaffi eða mjólk sem þér líkar best.
- Ristretto, Espresso, Lungo & Americano.
- Einungis 3 sekúndna upphitunartími
- Slekkur á sér sjálf
- 20 x 43 x 33 cm (b x d x h)
- 2300 W
- Fölbreytt úrval af mjólkuruppskriftum & mjólkurfroðu með ólíkri áferð
- 2 lítra vatnstankur
Þökk sé tvöföldu hita elementi má laga kaffi og útbú heita mjólkufroðu samtímis. Það þýðir að hægt er að útbúa 2 cappuccino á innan við 1 mínútu. Vélin hefur auðskilið notendaviðmót með háskerpu snertiskjá sem auðveldar undirbúning, stillingar og viðhald.
Vélin býður upp á úrval mjólkuruppskrifta; cappuccino, café latte, latte macchiato, flat white. Snertiskjárinn sýnir með einföldum leiðbeiningum hvernig skal útbúa uppskriftinar. Einnig má búa til sína eigin uppskrift og vista á skjáinn svo hægt sé að útbúa sama bollann aftur og aftur.
Með vélinni er einning hægt að útbúa mjólkufroðu með 8 ólíkum áferðarstigum og 11 mjólkurhitastillingum.
Fyrir þá sem kjósa svart kaffi þá eru valmöguleikar fyrir fullkominn svartan kaffibolla allt frá ristretto til americano. Hægt er að stilla magn af vatni og vista uppskrift. Einungis heitt vatn er einnig í boði.
Á snertiskjánum má sjá leiðbeiningar fyrir stillingu vélar og viðhald. Auðvelt er að þrífa vélina, ekki síst þar sem gufustúturinn hreinsast sjálfkrafa eftir hverja notkun.
Vélin slekkur sjálfkrafa á sér eftir 9 mínútur.
Hönnun er bæði vönduð og sterkbyggð en ytra byrði vélarinnar er úr ryðfríu stáli.
Mjólkurkanna úr ryðfríu stáli með hellistút fylgir vélinni.
VIÐ SENDUM KAFFIÐ HEIM
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 11:00 virka daga eru afhendar samdægurs milli kl. 17:00 og 22:00
NÝJIR VIÐSKIPTAVINIR
Viðskiptavinir geta skráð sig inn í vefverslun og notið góðs af ýmiskonar tilboðum.