
SENDINGARMÁTI
Heimsending á höfuðborgarsvæðinu
Heimsending er innifalin ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira. Sendingargjald vegna pantana undir 10.000 kr. er 1.000 kr.
Boðið er upp á eftirfarandi afhendingartíma:
- Milli kl. 10 og 16 næsta virka dag.
- Milli kl. 18 og 22 á virkum dögum - afhending samdægurs ef pantað er fyrir kl. 11, annars næsta virka dag á sama tíma.
BÍLSTJÓRI TEKUR VIÐ NOTUÐUM HYLKJUM
Heimsending utan höfuðborgarsvæðisins
Heimsending er innifalin ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira. Sendingargjald vegna pantana undir 10.000 kr. er 1.000 kr. Pantanir sem berast fyrir kl. 11:00 virkar daga eru póstlagðar samdægurs. Annars næsta virka dag.
Afhendingartími fer eftir landsvæðum og tekur á bilinu 1-3 daga. Í flestum tilvikum afhendir Pósturinn daginn eftir að tekið er við vörunum frá okkur.
Smelltu hér til að kynna þér þjónustu Póstsins betur.
BÆÐI ER HÆGT AÐ AFHENDA SENDLI NOTUÐ HYLKI OG SKILA Á PÓSTHÚS
Sending á afhendingarstaði í samstarfi við DROPP
Um allt land:
Afhending er innifalin ef verslað er fyrir 5.000 kr. eða meira. Sendingargjald vegna pantana undir 5.000 kr. er 490 kr.
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu, á Reykjanes, Akranes, Hveragerði og Selfoss eru afhentar samdægurs ef pantað er fyrir kl 11:00 virka daga og eru tilbúnar til afhendingar sama dag frá kl. 17:00, annars næsta virka dag.
Sækja í verslun
Þú getur sótt pantanir í verslun okkar á 2. hæð í Kringlunni.
Heimsending er einungis í boði innanlands.