Styrkleiki
10
Bragðsterkt og kryddað.
Ristretto Origin India sameinar úrvals Arabica-baunir og ögn af Robusta-baunum frá Suður-Indlandi. Þetta er kaffi með mikilli fyllingu, kröftugum einkennum og votti af kryddi.
Arabica- og Robusta-baunirnar sem valdar eru í þessa blöndu vaxa á Suður-Indlandi, í skugga stórtrjáa sem veita einnig skjól fyrir ræktun á pipar og öðrum kryddum. Plantekrurnar eru í mikilli hæð yfir sjávarmáli og Robusta-baunirnar sem við notum eru kröftugar og örlítið beiskar.
Arabica-baunirnar eru léttristaðar til að varðveita hárfínan ilminn, en Robusta-baunirnar eru mikið ristaðar til að draga fram bragðstyrkinn og fá mikla fyllingu. Baunirnar eru fínmalaðar til að auka fyllinguna og bragðið af kaffinu.
Kakó og þurrkaðar plöntur, auk kryddkenndrar ilmsamsetningar sem minnir á negul, pipar og múskat.
Styrkleiki
10
Bollastærð
Beiskja
4
Sýrustig
3
Ristun
4
Fylling
4
Öflug fylling og dökkristaður keimur þessa ristrettos eflist enn frekar þegar mjólkurlögg er bætt út í kaffið.
Þegar mjólkurfroðu er bætt við til að útbúa cappuccino úr Ristretto Origin India myndast sætur korn- og kexkeimur og mjúk áferð.
Fitukennda og silkimjúka fyllingin undirstrikar sæta karamellu- og smjörbrauðsbragðið og útkoman er einstaklega ljúffengt latte macchiato.
Ef þú pantar fyrir 12.500 kr eða meira þá borgar þú engan sendingarkostnað
Pantanir til afhendingar á höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út af Nespresso bílnum
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir miðnætti eru afhentar næsta virka dag
Bragðsterkt og kryddað.