
BARISTA CREATIONS CARAMELLO
MEÐ KARAMELLUKEIM
MEÐ KARAMELLUKEIM
Í BARISTA CREATIONS CARAMELLO stíga gómsæt karamella, vanilla og kókos dans í malt- og korntónum okkar mýksta lungo-kaffis. Þetta bragðbætta kaffi er dásamlega vel mótað og eins sætt og rjómakennt og crème brûlée.
Hlý karamellan mýkir ristaða tónana í því lungo-kaffi frá okkur sem er í mestu jafnvægi. Grunnblandan í þessu bragðbætta Nespresso-kaffi samanstendur af mörgum af bestu suðuramerísku Arabica-baununum. Við blönduðum brasilískum Bourbon-baunum við skolaðar kólumbískar baunir og ristuðum hvorar í sínu lagi til þess að fá hið fullkomna jafnvægi.
INNIHALD OG OFNÆMISVALDAR
Inniheldur: 10 hylki af BARISTA CREATIONS CARAMELLO með ristuðu og möluðu kaffi fyrir NESPRESSO kerfið. Pakkað í vernduðu umhverfi. Náttúruleg karamellu bragðbæting. Getur innihaldið hverfandi magn af orku, fitu, kolvetnum, próteini og salti.
Nettóþyngd: 50 g - 1.76 oz
Framleitt í Swiss: Nestlé Nespresso S.A. Av.d'Ouchy 4-6. CH - 1006 Lausanne. Switzerland
Bollastærð
Beiskja
1
Sýrustig
1
Ristun
2
Fylling
2
Espresso-grunnurinn sem er notaður í BARISTA CREATIONS bragðbætta kaffið okkar er þekktur fyrir að vera einstaklega mjúkur og með góða fyllingu.
Í þessari Arabica-kaffiblöndu ertu í góðum félagsskap bestu kaffibaunanna frá Suður-Ameríku. Silkimjúkar brasilískar Bourbon Arabica-baunir mynda eina heild með skoluðu kólumbísku Arabica-baununum.
Kakaóbragðið gerir blönduna enn mildari, og þú færð kunnuglega og flauelsmjúka áferð auk ristaða kaffiilmsins.
Ristunin er aðskilin, brasilíska kaffið er léttristað til þess að halda því mjúku og svo malt- og korntónarnir haldist en mest af kólumbísku kaffibaununum er ristað stutt svo fanga megi fíngerð blæbrigði bragðs og ilms. Að lokum eru baunirnar fínmalaðar til að fá svolítinn bragðstyrk í þetta einstaklega vel samsetta kaffi.
Ef þú pantar fyrir 10.000 kr. eða meira greiðir þú engan sendingarkostnað.
Við tökum á móti notuðum hylkjum til endurvinnslu um allt land.
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 11 eru afhentar samdægurs milli kl. 17 og 22.
MEÐ KARAMELLUKEIM
Nespresso klúbbmeðlimir eru fyrstir að vita af nýjum vörum, og þá sérstaklega sértilboðum og sértegundum kaffi, sem koma í sölu í litlu magni og aðeins í ákveðinn tíma.