SKAMMTAÐ KAFFI

Skammtastærðir

Hefurðu einhvern tímann velt því fyrir þér hvort Nespresso bollinn þinn sé góður kostur umhverfislega séð? Rannsóknir* sýna að skammtað kaffi er í raun betra fyrir umhverfið en uppáhellt kaffi. Þetta er vegna þess að við bruggun á Nespresso kaffibolla þá notarðu nákvæmt magn af kaffi og heitu vatni sem þarf fyrir hvern bolla. Þetta kemur í veg fyrir sóun á kaffi, vatni og orku.  

Sumir halda að skammtað kaffi sé verra fyrir umhverfið en annað kaffi  en til þess að skilja umhverfisáhrifin þá verðum við að líta á heildar virðiskeðjuna, frá baun til bolla.  

*The Positive Cup skýrslan 2020, hægt að lesa meira hér.

Vissir þú?

 

• Við höfum minnkað kolefnisfótsporið af Nespresso bolla um 24% síðan árið 2009.  

• Original hylkin eru núna gerð úr minnst 80% endurunnu áli og Vertuo hylkin úr 85% endurunnu áli.

• Árið 2020 nam fjárfesting okkar í endurvinnslustarfsemi um 8864 milljónum íslenskra króna. 

Getur Nespresso kaffi verið sjálfbært val?  

Óháðir sérfræðingar nota svokallað Life Cycle Assessment* og hafa fundið að skammtað kaffi hefur svipuð umhverfisáhrif eða jafnvel betri en aðrar leiðir sem notaðar eru til að búa til kaffi. Þetta er vegna þess að Nespresso mælir nákvæma neyslu við gerð á einum bolla og út frá því er hægt að mæla rétt magn af kaffi, vatni og orku. Við aðrar bruggunaraðferðir þá er auðvelt að nota of mikið kaffi, brugga meira en þú endar með að drekka og þar með eyða meiri orku en þurfti.   

*LCA rannsókn, hægt að lesa meira hér.

Af hverju skiptir svona miklu máli hvernig ég útbý kaffið mitt? 

Til þess að skilja umhverfisáhrifin af vöru þá verðum við að líta á alla virðiskeðju vörunnar, frá baun í bolla. Það gæti komið þér á óvart að heyra að kaffiræktun og einstaklingsnotkun eru tveir stærstu þættirnir í kolefnisfótspori kaffibolla, umbúðirnar koma aðeins í þriðja sæti. Það er þess vegna sem það er mikilvægt að stuðla að sjálfbærum búskaparháttum, ekki sóa kaffi og að nota orkusparandi vélar til að minnka kolefnisfótspor kaffibolla þíns.

Við hjá Nespresso tökum á þessum þáttum með sjálfbærri ræktun, Nespresso AAA Sustainable Quality, og með að tryggja að allar nýjar Nespresso vélar hafi biðstöðu eða sjálfvirka slökkvun til að lágmarka orkusóun.  

Að sjálfsögðu er ekki nóg að einbeita sér aðeins að tveimur stærstu þáttunum sem hafa áhrif á kolefnisfótspor okkar. Aðgerðir okkar til að draga úr losun ná yfir alla virðiskeðjuna og þú getur lesið meira um þær hér

Þessi vefsíða styðst við vefkökur til að bæta upplifun þína. Með því að smella á 'Samþykkja' samþykkir þú vefkökur fyrir: virkni, tölfræði og markaðssetningu