TAKTU ÞÁTT Í AÐ ENDURVINNA MEÐ OKKUR

Hvert hylki hefur möguleikann á að verða annað hylki eða eitthvað annað.  

Með því að gefa Nespresso kaffihylkjum annað líf, þá munt þú ekki aðeins njóta hágæðakaffis heldur mun hylkið vera notað í ýmsar endurunnar vörur svo sem penna, hjól eða nýtt hylki. 

Það er auðvelt að endurvinna.

Nespresso á Íslandi leggur ríka áherslu á að viðskiptavinir skili sínum hylkjum til endurvinnslu. Með hverri heimsendingu fylgja endurvinnslupokar og pokarnir fást einnig í verslunum okkar Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi. Pokana má nota oftar en einu sinni. Einnig er frjálst að nota hvaða poka sem er sem endurvinnslupoka. 

Svona getur þú endurunnið hylkin þín:

1. Settu notuðu hylkin þín í endurvinnslupoka. 

2. Þú getur skilað hylkjunum til okkar á eftirfarandi hátt:  

Verslanir: Komdu með hylkin í verslanir okkar Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi.  

Bílstjóri Nespresso: Þú getur afhent bílstjóra Nespresso notuðu hylkin þín við heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu. 

Dropp: Ef valið var að nota Dropp þá er tekið á móti notuðum hylkjum á afhendingarstað pöntunarinnar.   

Pósturinn: Þú getur afhent Póstinum notuð hylki við afhendingu.

Þessi vefsíða styðst við vefkökur til að bæta upplifun þína. Með því að smella á 'Samþykkja' samþykkir þú vefkökur fyrir: virkni, tölfræði og markaðssetningu