HVERS VEGNA ÁL?

HVERS VEGNA ÁL?

Álfilman er fullkomin hindrun fyrir ljós, súrefni, raka og bakteríur.

Næst mest af áli af öllum málmum í jarðskorpunni.

Við endurvinnslu áls þarf aðeins að nota 5% af þeirri orku sem þarf til að vinna ál frá grunni.

Dós getur verið komin til baka í búðina einingis 60 dögum eftir endurvinnslu.

Við hjá Nespresso viljum stuðla að því að auðlindir öðlist annað líf. 

Við vinnum náið með FTI, stærsta fyrirtækinu í endurvinnslu á umbúðum í Svíþjóð, til þess að tryggja að álið í hylkjunum okkar öðlist annað líf.  

 

Hefurðu velt því fyrir þér hvað gerist við notuðu kaffihylkin þín eftir að þú kemur þeim til endurvinnslu? 

Eftir að hylkin koma til FTI þá eru þau flutt ásamt öðrum málmumbúðum til sérfræðings í endurvinnslu á málmi. Litlar umbúðir úr áli eru flokkaðar frá öðrum málmum með ákveðinni tækni. Þetta er svo sent í álver sem notar málminn til að búa til nýjar vörur eins og gluggakarma, reiðhjól, bíla- og flugvélaíhluti. Málminn er einnig hægt að nota til þess að búa til ný kaffihylki.

Vissir þú?

• Við byrjuðum að safna hylkjum til endurvinnslu í Sviss árið 1991. Í dag bjóðum við upp á endurvinnslu á hylkjum í meira en 59 löndum og viðskiptavinir Nespresso hafa aðgang að yfir 100.000 söfnunarstöðum.  

Hægt að lesa meira hér.

• Við lok árs 2022 voru öll hylkin okkar gerð úr minnst 80% endurvinnanlegu áli, sem þarfnast 20 sinnum minni orku en gerð á nýju áli. Öll Original kaffihylkin okkar eru nú þegar gerð með þessum hætti.

• 75% af áli sem hefur verið framleitt er ennþá í notkun í dag. Það skiptir ekki máli hversu oft ál er endurunnið og mótað í mismunandi form, álið heldur sínum upprunalegu efniseiginleikum.  

• 86% af kolefnisfótsporinu af áli verður til við uppgröft og frumframleiðslu. Saman með IUCN og öðrum aðilum, hófum við ferlið sem leiddi til Aluminium Stewardship Initiative en það er fyrsti alþjóðlegi staðall áliðnaðarins um rekjanleika og umhverfisframmistöðu. 

Hægt að lesa meira hér

Ál er einstakt efni.

Það er efni sem er hægt að endurvinna endalaust, það er hægt að bræða það og endurmóta í hvaða form sem er eins og gluggakarma, reiðhjól, bíla- og flugvélaíhluti, án þess að tapa afköstum. 

Til þess að sýna hvað kaffihylkin geta orðið höfum við búið til Caran d’Ache 849 kúlupenna, Svissneskan Victorinox vasahníf og RE:CYCLE reiðhjól í samvinnu við Velosophy.  

Hægt að lesa meira hér

Þessi vefsíða styðst við vefkökur til að bæta upplifun þína. Með því að smella á 'Samþykkja' samþykkir þú vefkökur fyrir: virkni, tölfræði og markaðssetningu