OKKAR SKULDBINDINGAR

Loftlagskrísan er alvarlegt vandamál sem krefst brýnna aðgerða. Nespresso vill leggja sitt að mörkum til að vinna á móti þessu áhrifum. 

Nespresso miðar við að hafa enga losun gróðurhúsalofttegunda fyrir síðasta lagi 2050. Við munum ná þessu með að stækka og auka viðleitni okkar á öllu umfangi gróðurhúsalofttegunda frá býli til lok líftíma, koma í veg fyrir losun gróðurhúsalofttegunda í tengslum við starfsemi okkar og fjarlægja kolefni úr andrúmsloftinu. Hægt að lesa hér fyrir neðan þær leiðir sem við förum til þess að minnka loftlagsáhrifin okkar.  

Sjálfbær kaffiframleiðsla

Við hvetjum Nespresso bændur og gerum þeim kleift að endurnýja búskaparhætti eins og skógrækt, lífræna frjóvgun og jarðvegsþekju. 

Vistkerfi 

Við leggjum áhersla á hringrásarkerfi og nýsköpun. Viljum auka notkun á endurunnum og endurnýjanlegum efnum í hönnun á hylkjunum okkar, aukahlutum og vélum. 

Endurnýjanleg orka 

Við viljum halda áfram að auka orkunýtingu og færast í áttina að 100% endurnýjanlegri raforku á öllum Nespresso stöðum og verslunum.  

Endurvinnsla 

Við viljum, í samvinnu við viðskiptavini okkar, halda áfram að hækka endurvinnsluhlutfall kaffihyljanna. Auk þess viljum við fjárfesta í verkefnum sem auðvelda og einfalda endurvinnslu og verkefni þar sem kaffikorgur verður notaður sem uppspretta orku. 

Hagræðing flutninga 

Halda áfram að vinna náið með samstarfsaðilum úr aðfangakeðjunni okkar til að finna lausnir og nýjunga sem draga úr kolefnislosun í starfsemi okkar, flutningum og afhendingu á efnum og vörum. 

Gróðursetning trjáa og skógrækt 

Við viljum auka gróðursetningu trjáa á okkar vegum. Við höfum nú þegar gróðursett 5 milljónir trjáa innan og kringum kaffibæi þar sem Nespresso kaffi er ræktað en viljum hækka þessa tölu. 

Með öllum þessum aðgerðum stefnum við á að ná núlllosun gróðurhúsalofttegunda í síðasta lagi árið 2050 og stuðla þannig að kolefnisminna og náttúrulegra hagkerfi. 

Hægt er að lesa meira um AAA Sustainable Quality áætlunina hér.

Þessi vefsíða styðst við vefkökur til að bæta upplifun þína. Með því að smella á 'Samþykkja' samþykkir þú vefkökur fyrir: virkni, tölfræði og markaðssetningu