ÁÆTLUN UM FRAMTÍÐ BÆNDA

Annað framtak Nespresso er trygging fyrir uppskeru smárra kaffibænda, því var hleypt af stokkunum í Kólumbíu árið 2018 ásamt Fairtrade og Blue Marble Microinsurance. 

Áður fyrr gátu tryggingarfélög ekki boðið smábændum í afskertum sveitum viðeigandi tryggingar vegna þess að staðsetning þeirra og stærð gerði það að verkum að erfitt var að sannreyna tap. Kerfið sem Nespresso og Blue Marble hafa þróað notar gervihnattatækni og veðurspár fyrri ára til að sannreyna tap þegar á sér stað óveður sem veldur skemmtum á uppskerunni. Kerfið greiðir þá sjálfkrafa útborganir til bændanna án þess að matsmaður þurfi að koma til að meta aðstæðurnar. Þessi lausn er ódýrari, auðveldari og skilvirkari, það er því í fyrsta skipti hagkvæmt að bjóða þessum smábændum tryggingar.  

Vissir þú?

• Við hófum formlegt samstarf með Fairtrade árið 2013 með því að undirrita samning um að ákveðið magn af Fairtrade kaffi yrði útvegað á hverju ári.  

• 1800 bændur í Indónesíu og 2000 bændur í Kólumbíu hafa nú þegar byrjað að vinna samkvæmt áætluninni.  

• Í lok árs 2019 hafði Nespresso fjárfest um 800 milljónum íslenskra króna í Farmer Future Program. Helmingi var varið í að veita bændum tækniaðstoð og hinn helmingurinn fór í eftirlaunasparnað og uppskerutryggingar fyrir bændur.  

Þessi vefsíða styðst við vefkökur til að bæta upplifun þína. Með því að smella á 'Samþykkja' samþykkir þú vefkökur fyrir: virkni, tölfræði og markaðssetningu