Skuldbindingar okkar
Nespresso stefnir að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda jafnt og þétt á næstu árum. Hægt er að lesa hér fyrir neðan þær leiðir sem Nespresso fer til þess að minnka loftslagsáhrifin okkar.
Fyrir okkur snýst kaffiupplifunin líka um hvernig kaffið verður til. Við vinnum markvisst að ábyrgri ræktun, aukinni endurvinnslu og minna kolefnisspori. Það má fræðast nánar um okkar aðgerðir hér að neðan og í The Positive Cup sjálfbærniskýrslu Nespresso.
Nespresso stefnir að því að minnka losun gróðurhúsalofttegunda jafnt og þétt á næstu árum. Hægt er að lesa hér fyrir neðan þær leiðir sem Nespresso fer til þess að minnka loftslagsáhrifin okkar.
Í gegnum Nespresso Sustainable Quality Plan styðjum við kaffibændur með fræðslu og ráðgjöf við að taka upp endurnýjandi landbúnað, til dæmis með því að planta trjám samhliða kaffiræktun, nota lífrænan áburð og vernda jarðvegsþekju. Þetta er hluti af leið okkar að nettó núlllosun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2050.
Í dag starfa 738 sérfræðingar á vettvangi, þar á meðal búfræðingar, við að styðja bændur í Nespresso Sustainable Quality Plan.
Við viljum auka gróðursetningu trjáplantna á okkar vegum. Nespresso og samstarfsaðilar hafa gróðursett yfir 13 milljónir trjáa á kaffiræktarsvæðum frá árinu 2014.
Nespresso notar 100% endurnýjanlega raforku í framleiðslustöðvum sínum, skrifstofum og verslunum sem fyrirtækið rekur sjálft og á Íslandi.
Með þessum aðgerðum stefnum við að nettó núlllosun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2050. Fyrir árið 2030 ætlum við að draga úr losun um 50% í umfangi 1, 2 og 3 og um 75% í losun tengdri landbúnaði og landnotkun, miðað við árið 2018 eins og kemur fram í The Positive Cup sjálfbærniskýrslu Nespresso.
Við styðjum við bændur svo draga megi úr umhverfisáhrifum af kaffiræktuninni og að þeir geti staðið vörð um land sitt til framtíðar. Við gerum þetta með því að fræða hvernig á að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, minnka úrgang og notkun hættulegra efna.