Í samstarfi við kaffibændur síðan 2003
Loftslagsbreytingar og sveiflur á mörkuðum skapa mikla óvissu fyrir kaffibændur og ógna lífsviðurværi þeirra. Árið 2003 kom Nespresso á fót áætlun um kaffiöflun, í samstarfi við Rainforest Alliance, með það að markmiði að byggja upp traust og langtímasambönd við kaffibændur. Í dag heitir hún Nespresso Sustainable Quality Plan.
Áætlunin hefur tvö meginmarkmið: að tryggja hágæðakaffi sem ræktað er á ábyrgan hátt og að styrkja viðnámsþrótt bænda og samfélaga þeirra. Í dag taka yfir 131.000 bændur þátt í áætluninni og um 91% af kaffinu sem Nespresso kaupir kemur í gegnum hana.¹
Bændur fá einstaklingsmiðaða þjálfun og tæknilega ráðgjöf frá 738 sérfræðingum á vettvangi, þar á meðal búfræðingum. Áhersla er lögð á endurnýjandi landbúnað, svo sem trjárækt samhliða kaffiræktun og verndun jarðvegs. Bændur fá einnig greitt gæðaálag fyrir kaffi sem uppfyllir gæðakröfur Nespresso.
Í gegnum áætlunina styðjum við jafnframt verkefni sem auka félagslegt og fjárhagslegt öryggi bænda, til dæmis eftirlaunasparnað og uppskerutryggingar í Kólumbíu og Indónesíu í samstarfi við Fairtrade, auk aðgangs að hreinu drykkjarvatni og heilbrigðisþjónustu.
Vinnuaðstæður og mannréttindi í virðiskeðjunni eru metin af óháðum aðila, Fair Labor Association (FLA), sem hefur lokið mati í 17 löndum.¹
Vissir þú…?
- að 98% af kaffikaupum Nespresso eru á eða yfir lágmarksverði Fairtrade?¹
- að konur gegna um 39% stöðugilda sérfræðinga Nespresso á vettvangi?¹
- að yfir 37.000 manns njóta góðs af verkefnum um hreint drykkjarvatn, heilbrigðisþjónustu og fæðuöryggi?¹
¹ Heimild: Nespresso, The Positive Cup