Vegna loftlagsbreytinga og efnahagslegra sveifla þá eru kaffibændur útsettir fyrir mikilli hættu og óvissu sem ógnar lífsviðurværi þeirra. Árið 2003 fór Nespresso í samstarf við Rainforest Alliance til að koma á fót Nespresso AAA Sustainable Quality áætlun. Til þess að byggja upp traust og langtímasambönd við kaffibændur, með þessu köllum við fram jákvæð áhrif.
AAA áætlunin er samansett úr þremur stoðum: gæði, sjálfbærni og framleiðslugetu. Um 90% af kaffinu okkar kemur í gegnum þessa áætlun í samstarfi við meira en 122.000 bændur í 15 löndum.
Bændum er veitt einstaklingsmiðuð þjálfun og tækileg ráðgjöf. Þetta hefur hjálpað þeim að gera jörðina sína afkastameiri, arðbærari og sjálfbærari. Bændurnir græða einnig iðgjald fyrir hágæðakaffið sem þeir selja til Nespresso. Þetta iðgjald er að meðaltali hærra en fyrir kaffi í sama gæðaflokki.
Bændur þurfa ekki að borga aðildargjald og þeim ber engin skylda til að selja þeirra kaffi til Nespresso. Þeir fá ókeypis aðstoð við það að þróast og verða betri. Bændurnir eru metnir út frá nokkrum alþjóðlega viðurkenndum stöðlum, eins og ILO, FLA og Fairtrade Organic.
Í gegnum AAA áætlunina fjárfestum við einnig í innviði og öðrum tengdum verkefnum, eins og skógrækt, úrræði um eftirlaun bænda og tryggingarkerfi fyrir uppskeru þeirra. Þessi verkefni munu hjálpa bændum að verja sig fyrir óstöðugleika á umhverfinu og markaðinum.
Okkar reynsla hefur sýnt okkur að samstörf knýja fram nýsköpun og auka jákvæð áhrif. Velgengni Nespresso hefði ekki verið möguleg án stuðnings og þekkingu samstarfsaðila okkar.
Við vinnum náið með frjálsum félagasamtökum, alþjóðlegum fjármálastofnunum, samtökum um borgaraleg réttindi og öðrum fyrirtækjum, um allan heim.
Hægt að lesa meira hér.
Samkvæmt International Coffee Organization þá leggja konur mikið af mörkum til alþjóðlega kaffigeirans. Á meðan hlutverk þeirra í kaffiframleiðslu er nauðsynlegt þá hafa konur minni aðgang en karlar að auðlindum líkt og landi, fjármunum og upplýsingum. Kynjabilið er ekki aðeins konum í óhag heldur hefur það neikvæð áhrif á heildarframleiðni bænda og velferð heimila.
Nespresso miðar við að tryggja það að AAA áætlunin nái bæði til karla og kvenna og gagnist þeim jafnt. Til þess að ná þessu markmiði þá hefur Nespresso þróað tækni sem veitir nauðsynlega innsýn til að hægt sé að tryggja að konur fái styrk til að vera hluti af ákvörðunarferlinu og fái aðgang að auðlindunum sem þær þurfa. Þessi tækni var prófuð á þremur Nespresso ræktunarsvæðum: Aceh í Indónesíu, Fraijanes í Gvatemala og Sidamo í Eþíópíu. Tæknin var endurskoðuð af bæði kynja- og landbúnaðarsérfræðingum. Þessi tækni er núna víða viðurkennd sem dæmi um góða starfshætti og er núna notuð af mörgum kynjafræðingum í landbúnaðargeiranum, auk þess komið fram í mörgum ritum.
Annað framtak Nespresso er að bjóða nú tryggingar fyrir uppskeru smárra kaffibænda. Þessu verkefni var fyrst hleypt af stokkunum í Kólumbíu árið 2018 ásamt Fairtrade og Blue Marble Microinsurance.
Áður fyrr gátu tryggingarfélög ekki boðið smábændum í afskekktum sveitum að kaupa viðeigandi tryggingar vegna þess að staðsetning þeirra og stærð gerði það að verkum að erfitt var að sannreyna tjón.
Kerfið sem Nespresso og Blue Marble hafa þróað notar gervihnattatækni og veðurspár fyrri ára til að meta tjón á uppskerunni vegna óveðurs. Kerfið greiðir þá sjálfkrafa bætur án þess að matsmaður þurfi að mæta á staðinn. Þessi lausn er ódýrari, auðveldari og skilvirkari, það er því í fyrsta skipti hagkvæmt að bjóða þessum smábændum að fá sér tryggingar.
Vegna loftlagsbreytinga og efnahagslegra sveifla þá eru kaffibændur útsettir fyrir mikilli hættu og óvissu sem ógnar lífsviðurværi þeirra. Þess vegna hófum við samstarf við Rainforest Alliance árið 2003 til þess að þróa nýstárlega og sjálfbæra nálgun við kaffiöflun. Byggt á þessu þá hleypti Nespresso af stokkunum AAA Sustainable Quality áætluninni sama ár til að tryggja sjálfbærni og gæði á öllum stigum í fyrirtækinu.
Vegna loftlagsbreytinga og efnahagslegra sveifla steðja ógnir að lífsviðurværi kaffibænda. Því hófum við árið 2003, samstarf við Rainforest Alliance við að þróa nýstárlega og sjálfbæra nálgun við kaffiöflun. Sama ár hleypti Nespresso síðan af stokkunum AAA Sustainable Quality áætlunina til að tryggja sjálfbærni og gæði á öllum stigum í fyrirtækinu.
Reviving Origins áætlunin er síðan nálgun Nespresso við að veita kaffibændum sem orðið hafa fyrir skakkaföllum, t.d. vegna breytinga í veðurfari eða pólítíks óróa, aðstoð við að endurheimta kaffiframleiðslu sína.
Reviving Origins er langtíma skuldbinding fyrir báða aðila og á að virka sem hvati fyrir sjálfbærni og ekki síður seiglu bændasamfélaga til að takast á við þær áskoranir er víða blasa við. Áherslan er því jafnt á samfélagslega þætti og efnahagslega.