Vertuo Next Svört Mött
Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira
Vertuo Next opnar dyrnar að heimi fjölbreytileika með mismunandi bollastærðum, uppruna og kaffiblöndum í barista-gæðum. Núna getur þú útbúið hvað sem er allt frá espresso og tvöföldum espresso yfir í cappuccino, latte macchiato, lungo, americano og margt fleira, allt með einum hnappi.
Vertuo kerfið notar byltingarkennda og einkaleyfisvarða tækni til að draga fram enn ríkari ilm og bragð í hverjum einasta kaffibolla og skapar þannig óviðjafnanlega kaffi upplifun.
Vélin les strikamerkið á hverju hylki og stillir uppáhellinguna (hitastig, vatnsmagn og snúningshraða) sérstaklega fyrir hverja kaffitegund og stærð. Þetta tryggir að allar ilmtegundir og bragðeiginleikar ná að njóta sín til fulls í hverjum bolla og um leið draga fram yndislega flauelsmjúka undirtóna. Vertuo Next er með einstaka tækni sem veitir enn betri kaffiupplifun. Vertuo Next kemur í nokkrum litum.
Fyrir þau sem velja umhverfisvænni kosti þá er 50% af vélinni framleitt úr endurunnu plasti.
Vertuo Next vélin er sérstaklega hönnuð fyrir Nespresso kaffihylkin og kallar fram bestu eiginleika þeirra. Til að njóta kaffisins nákvæmlega eins og kaffisérfræðingar okkar ætluðust til, mælum við eingöngu með notkun á okkar eigin hylkjum.
Eiginleikar og virkni
Hvað er í kassanum?
Í kassanum finnur þú þá hluti sem sýndir eru á myndinni hér fyrir neðan: