Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira
Vertuo Next opnar dyrnar að heimi fjölbreytileika með mismunandi bollastærðum, uppruna og kaffiblöndum í barista-gæðum. Núna getur þú útbúið hvað sem er allt frá espresso og tvöföldum espresso yfir í cappuccino, latte macchiato, lungo, americano og margt fleira, allt með einum hnappi.
Vertuo kerfið notar byltingarkennda og einkaleyfisvarða tækni til að draga fram enn ríkari ilm og bragð í hverjum einasta kaffibolla og skapar þannig óviðjafnanlega kaffi upplifun.
Vélin les strikamerkið á hverju hylki og stillir uppáhellinguna (hitastig, vatnsmagn og snúningshraða) sérstaklega fyrir hverja kaffitegund og stærð. Þetta tryggir að allar ilmtegundir og bragðeiginleikar ná að njóta sín til fulls í hverjum bolla og um leið draga fram yndislega flauelsmjúka undirtóna. Vertuo Next er með einstaka tækni sem veitir enn betri kaffiupplifun. Vertuo Next kemur í nokkrum litum.Fyrir þau sem hugsa um umhverfið þá er 50% af vélinni framleitt úr endurunnu plasti.
Í kassanum finnur þú þá hluti sem sýndir eru á myndinni hér fyrir neðan:
Hátíðarkaffið er komið og nýja vefverslunin okkar þar að auki. Við vonumst til þess að upplifunin sé jafn ánægjuleg og kaffið.