Lattissima One Svört
Með Lattissima One getur þú gert þér dagamun með því að laga fyrsta flokks cappuccino og latte macchiato heima hjá þér.
Lattissima One er búin nýju og nýstárlegu mjólkurkerfi svo það hefur aldrei verið auðveldara að útbúa uppáhalds kaffi- og mjólkurdrykkina þína. Vélin freyðir mjólkina beint í bollann og lagar kaffið svo úr verður fullkominn kaffidrykkur.
Þrifin eru líka afar einföld þar sem ekki þarf að skola vélina eftir að drykkurinn hefur verið útbúinn. Mjólkurkannan má fara í uppþvottavélina.
Þessi handhæga og fallega kaffivél fer vel í hvaða eldhúsi sem er og með einni snertingu færðu þinn fullkomna bolla. Auk þess er hönnunin fyrsta flokks og áferðin vönduð.
Lattissima One vélin er sérstaklega hönnuð fyrir Nespresso kaffihylkin og kallar fram bestu eiginleika þeirra. Til að njóta kaffisins nákvæmlega eins og kaffisérfræðingar okkar ætluðust til, mælum við eingöngu með notkun á okkar eigin hylkjum.
Eiginleikar og virkni
Hvað er í kassanum?
Í kassanum finnur þú þá hluti sem sýndir eru á myndinni hér fyrir neðan: