Frí heimsending ef verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira
Lífrænu Arabica-baunirnar í Peru Organic vaxa í yfir 1.600 metra hæð á hlíðum Andesfjalla. Mikill raki og hæðin yfir sjó auka gæði baunanna. Einstakt loftslag í Perú, sem er ólíkt öðrum löndum nærri miðbaug, skapar kaffi sem á sér enga líka annars staðar í heiminum.
Peru Organic ljósristað lírfænt ræktað kaffi, ávaxtaríkt og með áhugaverða sýru sem gefur tóna af grænum eplum. Því fylgir sætur ilmur af ristuðu korni og exótískum ávöxtum. Með mjólk koma fram nýir bragðtónar af karamellu og hnetum, sem leika skemmtilega saman við náttúrulega sýru kaffisins.
Lífrænu Arabica-baunirnar eru létt ristaðar til að vernda ávaxtailm og fínlega sýru. Baunirnar eru ristaðar í tveimur aðskildum lotum, sem gefur svigrúm fyrir breytileika í ristun og skapar flóknara kaffi.
Hátíðarkaffið er komið og nýja vefverslunin okkar þar að auki. Við vonumst til þess að upplifunin sé jafn ánægjuleg og kaffið.