Þar sem íslenskt vatn er ekki sérstaklega kalkríkt líkt og gengur og gerist erlendis þarf ekki að afkalka kaffivélar á Íslandi oft. Við mælum þó með að það sé gert um það bil tvisvar á ári, þar sem afkölkunarferlið hreinsar kaffivélina vel að innan sem viðheldur gæðum vélarinnar.
Þetta tryggir að bragðupplifunin sé eins fullkomin og hún var í upphafi.
Pakkinn inniheldur 2 skammta af afkölkunarefni.