Styrkleiki
4
Á SINN EIGIN HÁTT
Hefurðu smakkað hið óviðjafnanlega Vivalto Lungo og velt fyrir þér hvernig við förum að því að skapa það? Ristaðir korntónar, blómaangan og þessi tælandi ristun – þetta er dramatísk blanda af Arabica-baunum frá Suður-Ameríku og Austur-Afríku sem mynda skemmtilega andstæðu.
Ein af kaffitegundunum í þessari Arabica-kaffiblöndu er frá Cerrado-svæðinu í Brasilíu. Þær eru verkaðar með náttúrulegum hætti sem þýðir að eftir uppskeru eru allar kaffibaunirnar látnar þorna í sólinni. Það færir Vivalto Lungo náttúrulegt jafnvægi. Cerrado-kaffi er þekkt fyrir sitt dæmigerða brasilíska bragð, góð fylling, hnetukeimur og lágt sýrustig. Arabica-baunum úr hálendi Kólumbíu er bætt við til að gefa kaffinu fínleika og líflega sýru. Þvegið Arabica-kaffi frá Eþíópíu bætist svo við með sínum blómakeim.
Stutt og dökk ristun á brasilíska kaffinu er helsta einkenni Vivalto Lungo. Þvegna kaffið er ristað minna til að halda í fínni blæbrigði bragðsins.
Bláa Nespresso-kaffihylkið – Vivalto Lungo – inniheldur tælandi ristað kaffi, en á milli ristaðs kornbragðsins má greina léttan blómakeim í fullkomnu jafnvægi.
Styrkleiki
4
Bollastærð
Beiskja
2
Sýrustig
2
Ristun
3
Fylling
2
Með örlítilli mjólk eflast beisku tónarnir í þessu milda kaffi þar sem margvíslegir korn-, ristunar-, hnetu- og ávaxtatónar fara saman.
Þegar Vivalto Lungo er drukkið úr háum bolla og toppað með froðu er áferðin silkimjúk með ilm- og bragðsamsetningu í góðu jafnvægi þar sem greina má kex, ristað korn og örlítinn ávaxta- og blómakeim.
Ef þú pantar fyrir 10.000 kr. eða meira greiðir þú engan sendingarkostnað.
Við tökum á móti notuðum hylkjum til endurvinnslu um allt land.
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 11 eru afhentar samdægurs milli kl. 17 og 22.
Á SINN EIGIN HÁTT
Nespresso klúbbmeðlimir eru fyrstir að vita af nýjum vörum, og þá sérstaklega sértilboðum og sértegundum kaffi, sem koma í sölu í litlu magni og aðeins í ákveðinn tíma.