Nánari upplýsingar
Viltu Cappuccino, Latte, Flat white eða aðeins meira af mjólkurfroðu út í kaffið? Með Gran Lattissima getur þú valið á milli sex ólíkra mjólkuruppskrifta og notið kaffihúsastemningar heima við með einni snertingu.
Fáguð, þægileg í notkun og umfram allt fjölhæf.
Ekki þarf endilega að hafa mikið fyrir fleiri uppskriftum. Þú velur einfaldlega hvort þig langar í Cappuccino, Latte, Flat white eða bara aðeins meira af mjólkurfroðu út í kaffið og Gran Lattissima uppfyllir ósk þína. Kaffivélin dregur fram bragðkeim Nespresso-kaffisins á þann máta sem þér líkar best.
Lattissima er fagurlega hönnuð kaffivél með snertistjórnun. Áferðafalleg kaffivél sem er einstaklega einföld í notkun. Vélin er einnig búin einföldu hreinsikerfi og hreinsar sig á milli undirbúnings tveggja kaffidrykkja á meðan þú slakar á.
Kaffið er lagað á svipstundu í sömu gæðum og á kaffihúsum.