Styrkleiki
6
Kaffi með ljúfu vanillubragði.
Espresso Vanilla er bragðbætt kaffi á grunni Espresso Forte, sem er flókin og mikið ristuð blanda suður- og miðamerískra Arabica-bauna. Þetta kaffi er með silkikenndu bragði, þökk sé ríkulegum og ögn karamellukenndum vanilluilminum sem bætist við flókna Espresso Forte prófílinn.
Þessi blanda samanstendur af úrvals mið- og suðuramerískum Arabica-baunum frá Kostaríku og Kólumbíu sem voru ræktaðar með hefðbundnum hætti til að varðveita malt- og ávaxtakenndan keiminn.
Meðalristun sem kallar fram malttóna og samspilið við ávaxtatónana skapar flókna og hárfína karamellukennda ilmsamsetningu.
Alhliða samsetning í góðu jafnvægi, dæmigerð fyrir nýristað kaffi, með korn-, malt- og karamellutónum og örlitlum ávaxtakeim.
Styrkleiki
6
Bollastærð
Beiskja
3
Sýrustig
3
Ristun
3
Fylling
3
Þegar mjólk er bætt við Espresso Vanilla mýkjast ristuðu tónarnir. Cappuccino í miklu jafnvægi sem minnir á vanillubakkelsi.
Ef Espresso Vanilla er búið til sem latte macchiato fær það freyðandi áferð og styrkleikinn minnkar. Fullkomið jafnvægi milds vanillukeims og sætra tóna gera útkomuna að hreinum unaði.
Ef þú pantar fyrir 12.500 kr eða meira þá borgar þú engan sendingarkostnað
Pantanir til afhendingar á höfuðborgarsvæðinu eru keyrðar út af Nespresso bílnum
Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir miðnætti eru afhentar næsta virka dag
Kaffi með ljúfu vanillubragði.