COCOA TRUFFLE

COCOA TRUFFLE

MEÐ SÚKKULAÐIKEIM

989 kr

10 hylki í lengju

lengja
lengjur

Eiginleikar

BARISTA CREATIONS Cocoa Truffle er bragðbætt kaffi með einstaklega mjúkri og góðri fyllingu, jafn dásamlega munaðarfullt og dökkar súkkulaðitrufflur.

SÉRKENNI

Þú þekkir Cocoa Truffle á áberandi kakaótónum með ögn af sætum möndlum og ofurlítilli vanillu. Bragðið af dökku og beisku kakaóbragði sameinast malt- og kornbragði espresso-grunnsins. Kröftug samsetning sem minnir á dökkar súkkulaðitrufflur.

Espresso-grunnurinn er blanda af okkar bestu suðuramerísku Arabica-baunum – sætum Bourbon-baunum frá Brasilíu ásamt skoluðum kólumbískum baunum. Aðskilin ristun dregur fram það besta í hverri tegund og skapar ótrúlega mjúkt espresso með góðri fyllingu sem passar afskaplega vel með ríku kakaóbragðinu.

INNIHALD OG OFNÆMISVALDAR
Inniheldur: 10 hylki af Cocoa Truffle með ristuðu og möluðu kaffi fyrir NESPRESSO kerfið. Pakkað í vernduðu umhverfi.  Náttúruleg kakó bragðbæting. Getur innihaldið hverfandi magn af orku, fitu, kolvetnum, próteini og salti.  
Nettóþyngd: 50 g - 1.76 oz
Framleitt í Swiss: Nestlé Nespresso S.A. Av.d'Ouchy 4-6. CH - 1006 Lausanne. Switzerland

Bollastærð

Beiskja

1

Sýrustig

1

Ristun

2

Fylling

2

Ilmprófíll

Milt

UPPRUNI

Espresso-grunnurinn sem er notaður í BARISTA CREATIONS bragðbætta kaffið okkar er þekktur fyrir að vera einstaklega mjúkur og með góða fyllingu.
Í þessari Arabica-kaffiblöndu ertu í góðum félagsskap bestu kaffibaunanna frá Suður-Ameríku. Silkimjúkar brasilískar Bourbon Arabica-baunir mynda eina heild með skoluðu kólumbísku Arabica-baununum.
Kakaóbragðið gerir blönduna enn mildari, og þú færð kunnuglega og flauelsmjúka áferð auk ristaða kaffiilmsins.

RISTUN

Ristunin er aðskilin, brasilíska kaffið er léttristað til þess að halda því mjúku og svo malt- og korntónarnir haldist en mest af kólumbísku kaffibaununum er ristað stutt svo fanga megi fíngerð blæbrigði bragðs og ilms. Að lokum eru baunirnar fínmalaðar til að fá svolítinn bragðstyrk í þetta einstaklega vel samsetta kaffi.

Við sendum kaffið heim

Ef þú pantar fyrir 10.000 kr. eða meira greiðir þú engan sendingarkostnað.

Endurvinnsla

Við tökum á móti notuðum hylkjum til endurvinnslu um allt land.

Fáðu pöntunina í kvöld

Pantanir á höfuðborgarsvæðinu sem berast fyrir kl. 11 eru afhentar samdægurs milli kl. 17 og 22.

COCOA TRUFFLE

COCOA TRUFFLE

MEÐ SÚKKULAÐIKEIM

989 kr

10 hylki í lengju

lengja
lengjur

Nespresso

Klúbburinn

Nespresso klúbbmeðlimir eru fyrstir að vita af nýjum vörum, og þá sérstaklega sértilboðum og sértegundum kaffi, sem koma í sölu í litlu magni og aðeins í ákveðinn tíma.