Ráðstafanir Nespresso vegna Covid-19
Við viljum veita viðskiptavinum sem mestan stuðning á þessum fordæmalausu tímum. Því miður hefur núverandi staða einnig áhrif á okkur. Til þess að svara mögulegum spurningum ykkar eins fljótt og auðið er höfum við sett saman lista yfir algengustu spurningar og svör við þeim á þessari síðu. Við munum uppfæra þessa síðu reglulega. Ef beiðni þín varðar ekki neina af spurningunum fyrir neðan eða ef henni er ekki svarað með fullnægjandi hætti skaltu hafa beint samband við þjónustudeild okkar.
Lokuðuð þið verksmiðjunum ykkar?
Nei. Verksmiðjur okkar eru enn í rekstri. Heilsa og öryggi starfsfólks okkar er í forgangi og við höfum skipulagt verksmiðjur okkar þannig að hægt sé að hafa nægilegt bil á milli fólks og sett strangari reglur um hreinlæti.
Eru vörurnar ykkar öruggar?
Já, við hjá Nespresso tökum heilsu og öryggi viðskiptavina okkar og starfsfólks mjög alvarlega. Við grípum til allra nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að vörur okkar séu öruggar gagnvart COVID-19.
Tekur lengri tíma að fá pöntunina mína afgreidda?
Við gerum allt til að halda áfram að koma Nespresso-vörunum þínum heim til þín eins fljótt og auðið er. Aftur á móti geta nýjar vinnuaðferðir til að vernda starfsfólk okkar og afhendingarþjónustu hægt á afköstum okkar og leitt til tafa.
Hvað er AAA Sustainable Quality™ verkefnið? / Er kaffið lífrænt?
Í AAA Sustainable Quality™ verkefninu samþættum við áburðargjöf og meindýravarnir í nálgun okkar á sjálfbæra stjórnun býla. Lífræn kaffiframleiðsla snýst hinsvegar um vistfræðileg áhrif kaffiræktunar.
Samþætta nálgunin byggir á sáðskiptum, notkun lífræns efnis úr safnhaugum og lífrænum meindýravörnum sem viðhalda frjósemi jarðvegsins og verjast meindýrum á kaffibýlum. Við trúum því að heildstæð nálgun AAA verkefnisins sé sjálfbærasta leiðin til að rækta okkar gæðamesta kaffi.
Þú getur fræðst betur um AAA Sustainable Quality™ verkefnið okkar og Jákvæða bollann hér.
Ef frekari upplýsinga er óskað - ekki hika við að hafa samband við kaffisérfræðinga okkar í verslun Nespresso 2. hæð Kringlunni, 1. hæð Smáralindinnni, eða Glerártorgi, netspjall á vefnum, hringja síma 575 4040 eða senda tölvupóst á netfangið nespresso@nespresso.is.
Hvað get ég gert ef vara sem ég vil panta er ekki til á lager?
Við biðjumst velvirðingar ef vara sem þú vilt panta er ekki til á lager á þeim tíma.
Við munum reyna að útvega þær vörur sem ekki eru í boði eins fljótt og auðið er.
Viljir þú leggja inn pöntun eða fá nákvæmari upplýsingar um hvenær vara er væntanleg hvetjum við þig til að hafa samband við klúbbinn í síma 575 4040 eða senda tölvupóst á netfangið nespresso@nespresso.is. Kaffisérfræðingar okkar munu aðstoða þig með brosi á vör.
Hvert er koffíninnihald kaffisins?
Koffínmagn í hverju hylki fer eftir því hvaða tegund af grænu kaffi er notuð í uppskriftinni. Robusta-kaffi inniheldur að meðaltali 2,4% en Arabica-kaffi inniheldur aftur á móti um 1,3% af koffíni. Koffínlaus hylki innihalda minna en 0,1% af koffíni. Klassísk Nespresso-hylki innihalda um 5gr af möluðu kaffi en Lungo-hylkin innihalda um 6gr af möluðu kaffi.
Dæmi: Hreint Arabica-kaffi í klassísku Nespresso-hylki (5gr) inniheldur 5 g x 1,3% = 0,065 g= 65 milligrömm (mg) af koffíni.
Fyrir neðan eru dæmi um meðaltal koffíninnihalds eftir gerð kaffiuppskriftar (gildi Matvælaeftirlits Bretlands 2001):
- Bolli af síuðu kaffi: 75 mg
- Bolli af skyndikaffi: 100 mg
- Tebolli: 50 mg
- Venjulegur kóladrykkur: allt að 40 mg
- Venjulegur orkudrykkur: 80 mg
- Dökkt súkkulaði: allt að 50 mg
- Mjólkursúkkulaði. 25 mg
Inniheldur kaffið skellakk eða bisfenól-A?
Innra lag hylkjanna inniheldur hvorki bisfenól-A (BPA) né skellakk.
Pantanir og eftirfylgni pantana
Eru gögnin mín örugg?Nespresso styðst við/notar allar viðteknar leiðir til að koma í veg fyrir að aðrir hafi aðgang að gögnum en þeir sem starfa fyrir hönd Nespresso og hafa samþykkt að meðhöndla öll gögn sem trúnaðarmál og með öruggum hætti. Aðgangur að gögnum takmarkast við þá starfsmenn sem þurfa aðgang að þeim og hafa fengið þjálfun til að fylgja ströngum skilyrðum um trúnað varðandi öll gögn.
Til að tryggja öryggi og trúnað gagna sem Nespresso safnar á netinu notum við varin gagnanet, eins og eldveggi og lykilorðavörn (sjá hengilás nálægt veffangsstikunni á greiðsluskjánum). Það sést að vefsvæðið okkar er öruggt á greiðsluskjánum þar sem þar stendur https:// í stað http:// fyrir framan www.nespresso.is. Þetta auka S stendur fyrir öryggi (secure).
Þó ber að hafa í huga að netið er almennt ekki talið algjörlega öruggt umhverfi og því getur Nespresso ekki ábyrgst trúnað þeirra gagna sem veitt eru eða efnis sem sent er um vefsvæði okkar eða með tölvupósti.
Vandamál með vöru
Ég vil skila kaffiNespresso skiptir eða endurgreiðir með ánægju öll kaup sem gerð eru á vefssíðu, verslunum okkar eða gegnum síma, að því gefnu að vörunni sé skilað í söluhæfu og ónotuðu ástandi í upprunalegum umbúðum, innan 30 daga gegn staðfestingu á kaupum.
Hafðu samband við kaffisérfræðinga okkar sem gera ráðstafanir svo þú getir skilað vörunni, í netspjalli á Nespresso.is, í síma 575 4040 eða sendu tölvupóst á netfangið nespresso@nespresso.is.
Þegar vörum er skilað endurgreiðir Nespresso á Íslandi innan 14 daga að hámarki eftir móttöku (á skiluðum vörum).
Af hreinlætis- og neytendaöryggisástæðum getum við því miður ekki tekið við skilum á kaffihylkjum, súkkulaði og bitum þar sem umbúðirnar hafa verið opnaðar eða skemmdar eftir afhendingu.
Ég vil skila fylgihlut
Það er 30 daga skilaréttur frá móttöku á öllum okkar vörum. Nespresso samþykkir öll skil á vörum í óaðfinnanlegu ástandi, í upprunalegum umbúðum, og með viðeigandi kvittun meðfylgjandi.
Komdu við í verslunum okkar á 2. hæð Kringlunni, 1. hæð Smáralind eða Glerártorgi, eða hafðu samband við okkur í netspjalli á Nespresso.is, í síma 575 4040 eða sendu tölvupóst á netfangið nespresso@nespresso.is.
Annað
Hvernig hef ég samband við Nespresso á Íslandi?
Markmið okkar er ávallt að veita þér fullkomna kaffiupplifun. Ef þú telur að okkur hafi ekki tekist það viljum við heyra frá þér.
Þú getur haft samband við okkur:
- Í netspjalli á Nespresso.is
- Hringja í Nespresso klúbbinn í símanúmerið okkar 575 4040
- Senda Nespresso klúbbnum tölvupóst á nespresso@nespresso.is
- Skrifa Nespresso klúbbnum á heimilisfangið hér fyrir neðan:
Nespresso klúbburinn
Skútuvogi 11a
104 Reykjavík
Kaffisérfræðingar okkar reyna að finna lausn innan sólarhrings. Ef frekari vinnsla fyrirspurna er þörf, lætur kaffisérfræðingur okkar þig vita hve langan tíma það tekur og ábyrgist að hafa samband innan þess tímaramma.
Við erum við frá kl. 9-17, en lengur í verslunum okkar í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi sem eru opin samkvæmt opnunartímum þeirra, sjá í neðst á vef okkar.
Fyrirspurnir sem berast um helgi í tölvupósti eða á vefnum okkar verður svarað næsta virka dag.
Er hægt að kaupa gjafakort?
Hægt er að kaupa gjafakort í verslunum okkar í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi. Ekki er hægt að kaupa né nota gjafakort í vefverslun eins og er.
Hvaða sendingarmöguleikar eru í boði? Hver er afhendingartími pantana?
Við pöntun er hægt að velja á milli þess að sækja í verslun, fá pöntunina heimsenda eða senda á valdar N1 stöðvar í samvinnu við Dropp.
Þegar valið er að sækja vöruna í verslun Nespresso í Kringlunni samstundis.
Athugið að ekki hægt að sækja pantanir í Smáralind.
Þegar valið er að fá vöruna heimsenda eða á næsta pósthús er sendingartími að jafnaði 1-3 virkir dagar. Sendingartími er mismunandi eftir landsvæðum.
Við bjóðum upp á útkeyrslu á pöntunum á höfuðborgarsvæðinu. Pantanir sem berast fyrir miðnætti eru keyrðar út eftir kl.17 næsta virka dag.
Pósturinn keyrir út pantanir utan höfuðborgarsvæðisins. Þar er heimsending einungis í boði á þeim svæðum sem Pósturinn býður upp á. Nánari upplýsingar á postur.is.
Þú getur valið að senda pöntun þína með Dropp á valdar N1 stöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Þar getur þú sótt pöntun þína á þeim tíma sem þér hentar best og í leiðinni afhent notuðu Nespresso hylkin þín til endurvinnslu.
Smelltu hér til að kynna þér þjónustu Dropp betur.
Pantanir eru einungis í boði innan Íslands.
Hvaða greiðslumöguleikar eru í boði?
Hægt er að inna greiðslu af hendi með öllum helstu greiðslukortum eða Netgíró.
Hvernig fæ ég fría heimsendingu?
Boðið er upp á fría heimsendingu þegar verslað er fyrir kr. 10.000 eða meira. Öðrum kosti er sendingarkostnaður 1.000 krónur og bætist við í greiðsluferli.
Hvað geri ég ef kaffivélin mín bilar?
Ef vélin þín bilar komdu við í verslunum okkar á höfuðborgarsvæðinu eða Glerártorgi, hafðu samband við kaffisérfræðinga í þjónustuveri okkar í gegnum netspjall á vefnum, í síma 575 4040 eða sendu tölvupóst á nespresso@nespresso.is. Við munu aðstoða þig með brös á vör.
Þarf að afkalka kaffivélar?
Það þarf ekki að afkalka vélar á Íslandi. Við mælumst þó til að gera það einu sinni á ári, einfaldega til að þrífa vélina.
Ég vil skila vél
Það er 30 daga skilaréttur frá móttöku á öllum okkar vörum. Nespresso samþykkir öll skil á vörum í óaðfinnanlegu ástandi, í upprunalegum umbúðum, og með viðeigandi kvittun meðfylgjandi.
Ef vélin þín er keypt hjá Nespresso á Íslandi komdu við í verslun okkar á 2. hæð Kringlunni, 1. hæð Smáralind eða Glerártorgi, eða hafðu samband við okkur í netspjalli á Nespresso.is, í síma 575 4040 eða sendu tölvupóst á netfangið nespresso@nespresso.is.
Hvernig bið ég um afrit af reikningi fyrir pöntunina mína?
Viðskiptavinir geta sótt upplýsingar um pantanir og greiðslur sínar með því að skrá sig inn á vefnum. Einnig er hægt að hringa í síma 575 4040 eða senda tölvupóst á netfangið nespresso@nespresso.is og fá kvittun senda með tölvupósti.
Þarf að borga virðisaukaskatt?
Allur virðisaukaskattur er innifalinn í heildarverði vörunnar.
Afgreiðslutími í verslun
Afgreiðslutími verslunar okkar í Kringlunni fylgir almennum opnunartíma Kringlunnar.
Afgreiðslutími verslunar okkar í Smáralind fylgir almennum opnunartíma Smáralindar.
Afgreiðslutími verslunar okkar á Glerártorgi fylgir almennum opnunartíma Glerártorgs.